Tinna flytur Incidental Music eftir George Brecht og Piano Piece No. 1 eftir Tomas Schmit frá árinu 1962 í tengslum við myndlistarsýninguna Ný list verður til á Listasafni Reykjavíkur og tónleikaseríuna Jaðarber. Jón Proppé, listheimspekingur verður með sýningarstjóraspjall kl: 15 og verða gjörningarnir fluttir fyrir og eftir það. Sunnudaginn 18. september 2011 á Kjarvalsstöðum
Nánar um viðburðinn
Jaðarber er splunkuný tónleikasería sem stofnað var til í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur og hefst nú í haust. Þar verður lögð áhersla á tilraunir í tónlist, afmáð mörk listgreina og tónleikaformið tekið til endurskoðunar. Aðstandendur hennar eru Tinna og Guðmundur Steinn Gunnarsson, tónskáld. Fulla dagskrá viðburða vetrarins 2011-2012 má finna á heimasíðu raðarinnar: Jaðarber
Umfjöllun Kastljóss í gær um listviðburðinn Nú nú eftir Bjargeyju Ólafsdóttur, myndlistarmann á setningu tónleikaraðarinnar Jaðarbers. Viðtöl og myndir frá sýningunni
Kastljós-Nú nú
Jaðarber – ný tónleikaröð í samvinnu við Listasafn Reykjavíkur hófst í gær með listviðburðinum Nú nú eftir Bjargeyju Ólafsdóttur, myndlistarmann. Listasafni Reykjavíkur barst gjöf á sama tíma frá Landsbanknum, foláta Petrof flygill, sem var vígður með viðburðinum. Gleðiefni sem á vafalaust eftir að hafa góð áhrif á tónlistarlífið í miðborginni