Geisladiskurinn Granit Games kom út árið 2007 hjá Smekkleysu og inniheldur íslenska píanótónlist. Tónlistin á disknum spannar breiðan skala, allt frá íslenskum þjóðlögum til raftónlistar, en flest verkanna eiga það sameiginlegt að hafa verið samin fyrir Tinnu og flutt af henni um víðan völl. Tónskáld sem eiga verk á disknum eru Jón Leifs, Mist Þorkelsdóttir, Þorsteinn Hauksson, Áskell Másson, Karólína Eiríksdóttir, Hilmar Þórðarson, Steingrímur Rohloff og Kolbeinn Einarsson. Umslagið hannaði Rósa Hrund Kristjánsdóttir.
Granit Games má nálgast hjá Smekkleysu og Gogoyoko.
Tinna hefur frumflutt fjölda tónverka, bæði íslensk og erlend. Hér er að finna heildarlista einleiks- og dúóverka.
Emptying og Sea Chime eftir Greg Davis (tileinkað Dieter Roth)
Frumflutningur á Sononymus II frá 1968 eftir Magnús Blöndal Jóhannsson og heildarflutningur á píanóverkum hans
Laser Cats eftir Jesper Pedersen
meira á leiðinni…
Lokaritgerð frá Tónlistarháskólanum í Detmold-Münster, Þýskalandi, 2000
(more…)
Undirbúið píanó (e. Prepared Piano) er hugarfóstur ameríska tónskáldsins John Cage. Framandi hlutum er komið fyrir á milli strengja píanósins eftir kúnstarinnar reglum til að breyta hljóðum þess.
(more…)