Dagatal

Holst – Pláneturnar og Ligeti fyrir tvö píanó

Á Tíbrártónleikaröðinni leika Tinna og Dr. Kristín Jónína Taylor Pláneturnar í frummynd Gustavs Holst fyrir tvö píanó og Three Pieces for Two Pianos eftir György Ligeti þann 12. maí 2012 kl: 17 í Salnum, Kópavogi
Salurinn

Nú nú á Reykjavík Dance Festival

Bjargey - Piece of artFjölbragðaverkið Nú nú eftir Bjargeyju Ólafsdóttur myndlistarmann verður sýnt á Reykjavík Dance Festival. Tvær sýningar eru fyrirhugaðar fimmtudaginn 8. september kl. 12:15 og laugardaginn 10. september kl. 17:00 í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsinu.
Höfundur: Bjargey Ólafsdóttir
Rödd: Xavier Le Roy, dansari og dansahöfundur
Upptökustjóri og hljóðhönnuður: Elisabeth Carlsson
Píanóleikari: Tinna Þorsteinsdóttir
Verkfræðingar: Kristín Martha Hákonardóttir og Arnar Ágústsson
Nánar um verkið á Reykjavík Dance Festival

John Cage – Hinsegin dagar

Á hinsegin nótum. Klassískur konsert með tónlist eftir samkynhneigð tónskáld frá ýmsum öldum. Ellefu íslenskir tónlistarmenn flytja. Þar á meðal hljómar And the Earth Shall Bear Again eftir John Cage fyrir undirbúið píanó. Í Norðurljósasal Hörpu þann 5. ágúst kl: 20. Ókeypis aðgangur
Hinsegin dagar

Myndir

Harpa
So much fun when people gather around the piano to have a look inside
So much fun when people gather around the piano to have a look inside
My credit card never sounded better
My credit card never sounded better
and the bamboo stick really rocked
and the bamboo stick really rocked
The joy of John Cage
The joy of John Cage



Tinna flytur íslenska píanótónlist

Umfjöllun um frumflutninga sem litu ljós árið 2010 hjá Íslenskri tónverkamiðstöð:
Íslensk tónverkamiðstöð

Feneyjatvíæringurinn

Fulltrúar Íslands á Feneyjatvíæringnum sem nú er haldinn í 54. sinn eru myndlistartvíeykið Ólafur Ólafsson og Libia Castro. Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands (sem unnin var með tónskáldinu Karólínu Eiríksdóttur er eitt þriggja verka sem sýnd verða í íslenska skálanum á tímabilinu 1.6. – 27.11.2011. Nánar um verkefnið á heimasíðu listamannanna:
Óli y Libia
Karólína Eiríksdóttir

Dórófónaleikar

Tónleikar á sýningunni Hljóðheimar sem fram fer þessa dagana í Listasafni Íslands. Þar verða frumflutt verk fyrir Dórófóna Halldórs Úlfars Arnarssonar. M.a. nýtt verk Hallvarðs Ásgeirssonar fyrir undirbúið píanó og Dórófón, ásamt Söndru Ósk Snæbjörnsdóttur, laugardaginn 2. apríl kl: 14 í Listasafni Íslands
Hallvarður Ásgeirsson
Halldór Arnar Úlfarsson
Hljóðheimar

Dórófónn, tekið á æfingu

Álfareiðin tilnefnd til Eddunnar

Álfareiðin, ný sjónvarpsupptaka Ríkisútvarpsins með salonhljómsveitinni L´amour fou er tilnefnd til Edduverðlaunanna í flokki menningar- eða lífstílsþáttur ársins 2010. Verðlaunafhending fer fram þann 19. febrúar 2011 í Íslensku óperunni
Eddan

Verkið Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands í sjónvarpinu

Verkið Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands eftir Karólínu Eiríksdóttur, tónskáld og myndlistartvíeykið Ólaf Ólafsson og Libiu Castro verður sýnt í Ríkissjónvarpinu miðvikudaginn 16. febrúar 2011 kl: 22:15. Flytjendur eru söngvararnir Ingibjörg Guðjónsdóttir og Bergþór Pálsson, Kammerkórinn Hymnodia undir stjórn Eyþórs Inga Jónssonar ásamt Tinnu Þorsteinsdóttur, píanóleikara og Gunnlaugi Torfa Stefánssyni, kontrabassaleikara. Endursýning þann 20. feb. 2011 kl. 13:50

Stjórnarskrá lýðveldisins á tónleikum

Verkið Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands eftir Karólínu Eiríksdóttur, tónskáld og myndlistartvíeykið Ólaf Ólafsson og Libiu Castro verður flutt á tónleikum í Hafnarborg laugardaginn 12. febrúar 2011 kl: 15. Flytjendur eru söngvararnir Ingibjörg Guðjónsdóttir og Bergþór Pálsson, Kammerkórinn Hymnodia undir stjórn Eyþórs Inga Jónssonar ásamt Tinnu Þorsteinsdóttur, píanóleikara og Gunnlaugi Torfa Stefánssyni, kontrabassaleikara. Athugið að sætafjöldi er takmarkaður! Aðgangur er ókeypis.
Myndlistarsýningin Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands verður síðan opnuð í kjölfarið og til 13. mars, eða loka sýningartímabilsins, verður í safninu viðamikil myndbandsinnsetning byggð á flutningnum
Hafnarborg

Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands – sjónvarpsupptaka

Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands eftir Karólínu Eiríksdóttur, tónskáld og myndlistartvíeykið Ólaf Ólafsson og Libiu Castro fer í sjónvarpsupptökur þann 2. febrúar 2011 fyrir RÚV og verður síðar sýnt í Ríkissjónvarpinu, auk þess að vera sýnt á myndlistarsýningu Ólafs og Libiu sem fram fer í Hafnarborg þann 12. febrúar – 13. mars

Frumflutningur með Kammersveit Reykjavíkur

Frumflutningur á Héxíé, nýju verki Hlyns A. Vilmarssonar fyrir píanó, strengjasveit og sínusbylgjur með Kammersveit Reykjavíkur á Myrkum Músíkdögum 30. janúar 2011 á Listasafni Íslands kl: 20, stjórnandi Petri Sakari
Kammersveit Reykjavíkur
Myrkir Músíkdagar

Andlit – Una og Tinna á Myrkum Músíkdögum 2011

Tónleikar með Unu Sveinbjarnardóttur, fiðluleikara, á Myrkum Músíkdögum laugardaginn 29. janúar 2011 kl: 12 í Hafnarborg. Á efnisskránni eru verk fyrir fiðlu og píanó og þar af þrjú frumflutt: Vargarð (2010) eftir Guðmund Stein Gunnarsson, Skemmtilegt lag (2011) eftir Pál Ivan Pálsson og 295° (2011) eftir Áka Ásgeirsson. Önnur verk eru Antlitz eftir Wolfgang Rihm, Mónetta eftir Kjartan Ólafsson, Doloroso eftir Jónas Tómasson, Cesiliana eftir Misti Þorkelsdóttur og Íslensk svíta eftir Jórunni Viðar
Myrkir Músíkdagar
Hafnarborg

Í beinni á Rás 1

Una Sveinbjarnardóttir, fiðluleikari og Tinna spila í beinni í Víðsjá, þætti Ríkisútvarpsins sem er helgaður Myrkum Músíkdögum 2011 fimmtudaginn 27. janúar, Rás 1 kl: 16-18. Þátturinn er formleg opnun hátíðarinnar

Álfareiðin – L´amour fou á Gamlárskvöld

Álfareiðin er ný sjónvarpsupptaka fyrir Ríkisútvarpið með salonhljómsveitinni L´amour fou. Sýnt á Gamlárskvöld kl: 23.25, 6. janúar kl: 16: 45 og 9. janúar kl: 10: 25. Einnig er hægt að sjá upptökuna á vef RÚV frá því á Gamlárskvöld

Tinna tekur S.L.Á.T.U.R (fyrir jólin)

Tónleikar með nýjum píanóverkum eftir Slátur-meðlimi í Norræna húsinu, laugardaginn 18. desember klukkan 17:00. Tinna hefur unnið með ýmsum Slátur-meðlimum í gegnum tíðina og mun nú flytja verk frá 2009 og 2010 sem flest voru gerð í samvinnu við hana. Verkin sem flutt verða á tónleikunum eru öll sérlega frumleg og áhugavekjandi. Tónlist Sláturmeðlima, sem miðast að útbreiðslu listrænt ágengrar hugmyndafræði og nýsköpun í menningu, hefur hlotið mikið lof almennra hlustenda, listasamfélagsins og fræðimanna.
Verk frumflutt á tónleikunum: Miniature #3 eftir Hallvarð Ásgeirsson, Lag og brotnir hljómar í lokin eftir Pál Ivan Pálsson, Artaud eftir Þráin Hjálmarsson, Sonification II-88 eftir Þorkel Atlason, Laser Cat “The Christmas Edition” eftir Jesper Pedersen með vídeói eftir Halldór Úlfarsson, 297° eftir Áka Ásgeirsson. Önnur verk: Harsamvaða (2010) eftir Guðmund Stein Gunnarsson, Flæði III (2009) eftir Gunnar Karel Másson, Ornaments (2009) eftir Inga Garðar Erlendsson
S.L.Á.T.U.R.

Laser Cat “The Christmas Edition” eftir Jesper Pedersen með vídeói eftir Halldór Arnar Úlfarsson

EXPO 2010 Shanghai

-Efnisskrá á íslenska þjóðadeginum þann 11. september 2010 á heimssýningunni í Shanghai með íslenskri píanótónlist í opinberri dagskrá forseta Íslands. Verk eftir Jón Leifs, Atla Heimi Sveinsson, Báru Grímsdóttur og Þorstein Hauksson. Expo Center kl: 11
-Dagskrá um kvöldið: Verk eftir Hjálmar H. Ragnarsson m.a. og glænýjar útsetningar Hrafnkels Orra Egilssonar á sönglögum eftir Sigfús Halldórsson og Gunnar Þórðarson. Íslenska skálanum kl: 17
Expo2010 íslenska síðan
Expo2010 Shanghai

Myndir

Expo, Shanghai 2010
The President opens the formal ceremony in the morning on the special Iceland Day at Expo Center
The President opens the formal ceremony in the morning on the special Iceland Day at Expo Center
Tinna on TV
Tinna on TV
Rehearsing at the Icelandic Pavilion in the evening
Rehearsing at the Icelandic Pavilion in the evening
Waiting backstage for the performance
Waiting backstage for the performance
...and this was the Expo
…and this was the Expo
I´m glad I´m not in her shoes
I´m glad I´m not in her shoes
To follow, various Beijing spots, here in Tiananmen Square
To follow, various Beijing spots, here in Tiananmen Square
The Forbidden City
The Forbidden City
The Summer Palace
The Summer Palace
It´s official, I love China and feel lucky to have visited a couple of times!
It´s official, I love China and feel lucky to have visited a couple of times!




Hong Kong

Tónleikar ásamt William Lane, víóluleikara. The Chinese University of Hong Kong, Lee Hysan Concert Hall, Esther Lee Building, Chung Chi College, þann 9. september 2010 kl: 20. Íslensk dagskrá með verkum eftir Jón Leifs, Önnu S. Þorvaldsdóttur, Karólínu Eiríksdóttur, Þorstein Hauksson, Steingrím Rohloff og frumflutt nýtt píanóverk eftir Hlyn Aðils Vilmarsson
William Lane
cuhk

Afmælistónleikar Áka Ásgeirssonar

Mánudagskvöldið 30. ágúst 2010 kl. 20 verða tónleikar með verkum Áka Ásgeirssonar í Útgerðinni, Grandagarði 16. Tónleikarnir eru haldnir að tilefni 35 ára afmælis Áka og innihalda úrval tónverka síðustu fimm ára
Áki Ásgeirsson

Ráðherrafundur EFTA á Íslandi

Tónlistarviðburður á Ráðherrafundi EFTA, en 50 ár eru liðin frá því að fríverslunarsamtökin voru sett á fót. Ásamt Unu Sveinbjarnardóttur, fiðluleikara, 23. júní 2010 í Salnum, Kópavogi

London – einleikstónleikar

Einleikstónleikar í The Foundling Museum í London þann 17. júní 2010 kl: 13 með íslenskri efnisskrá. Jón Leifs: -Fjögur Lög, op. 2-, Mist Þorkelsdóttir: -Granit Games-, Þorsteinn Hauksson: -Tvær tokkötur-, Hilmar Þórðarson: -Sononymus-, Karólína Eiríksdóttir: -Partíta-. Styrkt af Reykjavík Loftbrú
The Foundling Museum