Áki frá Garði 238°

Áki Ásgeirsson, tónskáld, átti stórafmæli á árinu og að því tilefni býður tónviðburðarröðin Jaðarber til leika, þar sem frumflutt verður nýtt verk hans 238° fyrir 4 hljóðfæri og tölvu.

Flytjendur eru Tinna Þorsteinsdóttir, Páll Ivan frá Eiðum, Ásthildur Ákadóttir, Áki Ásgeirsson, Sunna Ross og Jesper Pedersen.

Miðvikudaginn 11. nóvember kl: 20.00 í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi

www.jadarber.is