Krakkamengi 7

Tilraunanámskeið í tónlistarsköpun fyrir krakka 4-6 ára í Mengi, Óðinsgötu 2. Námskeiðið er opið öllum krökkum á þessum aldri og þeim fullorðnu sem fylgja þeim.

Í sjöundu smiðjunni, sem fram fer sunnudaginn 6. mars kl: 10.30, munu þau KK og Tinna Þorsteinsdóttir verða í hlutverki gestaleiðbeinenda. Benni Hemm Hemm, sem og gestaleiðbeinendur hans, gefa vinnu sína og er aðgangur ókeypis og opinn öllum börnum á aldrinum 4 til 6 ára sem og foreldrum þeira á meðan húsrúm leyfir en gert er ráð fyrir fullri þátttöku foreldra í smiðjunni.

Krakkamengi 7