Johannes Kreidler í heimsókn

Johannes Kreidler, tónskáld, heimsækir Jaðarber: Málþing, fyrirlestur og portrett tónleikar í samvinnu við tónlistardeild Listaháskóla Íslands. Portrett tónleikar með verkum Johannesar Kreidler verða mánudagskvöldið 22. september 2014 kl: 20 í Hafnarhúsinu, Listasafni Reykjavíkur. Á tónleikunum koma fram Una Sveinbjarnardóttir, fiðla, Berglind María Tómasdóttir, flauta, Flemming Viðar Valmundsson, harmóníka, Frank Aarnink, slagverk, Guido Bäumer, baritón saxófónn, Sigurður Halldórsson, selló, Tinna Þorsteinsdóttir, píanó
Meira hér