Stjórnarskrá lýðveldisins á tónleikum

Verkið Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands eftir Karólínu Eiríksdóttur, tónskáld og myndlistartvíeykið Ólaf Ólafsson og Libiu Castro verður flutt á tónleikum í Hafnarborg laugardaginn 12. febrúar 2011 kl: 15. Flytjendur eru söngvararnir Ingibjörg Guðjónsdóttir og Bergþór Pálsson, Kammerkórinn Hymnodia undir stjórn Eyþórs Inga Jónssonar ásamt Tinnu Þorsteinsdóttur, píanóleikara og Gunnlaugi Torfa Stefánssyni, kontrabassaleikara. Athugið að sætafjöldi er takmarkaður! Aðgangur er ókeypis.
Myndlistarsýningin Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands verður síðan opnuð í kjölfarið og til 13. mars, eða loka sýningartímabilsins, verður í safninu viðamikil myndbandsinnsetning byggð á flutningnum
Hafnarborg

English version