Tónleikar með nýjum píanóverkum eftir Slátur-meðlimi í Norræna húsinu, laugardaginn 18. desember klukkan 17:00. Tinna hefur unnið með ýmsum Slátur-meðlimum í gegnum tíðina og mun nú flytja verk frá 2009 og 2010 sem flest voru gerð í samvinnu við hana. Verkin sem flutt verða á tónleikunum eru öll sérlega frumleg og áhugavekjandi. Tónlist Sláturmeðlima, sem miðast að útbreiðslu listrænt ágengrar hugmyndafræði og nýsköpun í menningu, hefur hlotið mikið lof almennra hlustenda, listasamfélagsins og fræðimanna.
Verk frumflutt á tónleikunum: Miniature #3 eftir Hallvarð Ásgeirsson, Lag og brotnir hljómar í lokin eftir Pál Ivan Pálsson, Artaud eftir Þráin Hjálmarsson, Sonification II-88 eftir Þorkel Atlason, Laser Cat “The Christmas Edition” eftir Jesper Pedersen með vídeói eftir Halldór Úlfarsson, 297° eftir Áka Ásgeirsson. Önnur verk: Harsamvaða (2010) eftir Guðmund Stein Gunnarsson, Flæði III (2009) eftir Gunnar Karel Másson, Ornaments (2009) eftir Inga Garðar Erlendsson
S.L.Á.T.U.R.
Laser Cat “The Christmas Edition” eftir Jesper Pedersen með vídeói eftir Halldór Arnar Úlfarsson
English version