Tónleikar með Unu Sveinbjarnardóttur, fiðluleikara, á Myrkum Músíkdögum laugardaginn 29. janúar 2011 kl: 12 í Hafnarborg. Á efnisskránni eru verk fyrir fiðlu og píanó og þar af þrjú frumflutt: Vargarð (2010) eftir Guðmund Stein Gunnarsson, Skemmtilegt lag (2011) eftir Pál Ivan Pálsson og 295° (2011) eftir Áka Ásgeirsson. Önnur verk eru Antlitz eftir Wolfgang Rihm, Mónetta eftir Kjartan Ólafsson, Doloroso eftir Jónas Tómasson, Cesiliana eftir Misti Þorkelsdóttur og Íslensk svíta eftir Jórunni Viðar
Myrkir Músíkdagar
Hafnarborg
English version