Verkið Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands í sjónvarpinu

Verkið Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands eftir Karólínu Eiríksdóttur, tónskáld og myndlistartvíeykið Ólaf Ólafsson og Libiu Castro verður sýnt í Ríkissjónvarpinu miðvikudaginn 16. febrúar 2011 kl: 22:15. Flytjendur eru söngvararnir Ingibjörg Guðjónsdóttir og Bergþór Pálsson, Kammerkórinn Hymnodia undir stjórn Eyþórs Inga Jónssonar ásamt Tinnu Þorsteinsdóttur, píanóleikara og Gunnlaugi Torfa Stefánssyni, kontrabassaleikara. Endursýning þann 20. feb. 2011 kl. 13:50

English version