Tinna Þorsteinsdóttir er með víðtæka reynslu á sviði nýrrar tónlistar og hefur frumflutt um 40 píanóverk sem samin hafa verið fyrir hana síðastliðin ár. Hún vinnur náið með mörgum íslenskum tónskáldum, er liðtæk í tilraunatónlistarsenunni og hefur unnið með tónskáldum eins og Helmut Lachenmann, Morton Subotnick, Evan Ziporyn, Christian Wolff og Greg Davis.
Menntuð sem klassískur píanóleikari þá spilar Tinna allar aldir píanóbókmenntanna, þótt 21sta öldin sé hennar aðal ástríða. Undirbúið píanó, rafhljóð, dótapíanó og gjörningar ná gjarnan inn á efnisskrár hennar.
Helstu einleikstónleikar hennar hafa verið á Listahátíðinni í Bergen í seríunni Unge talenter 2006 í safni Edvards Grieg á Troldhaugen, Listahátíð í Reykjavík, Autunno Musicale tónlistarhátíðinni í Capua – Ítalíu, Nordischer Klang listahátíðinni í Greifswald – Þýskalandi, Foundling Museum í London, The Chinese University í Hong Kong, GL Strand listasafninu í Kaupmannahöfn, Summit Club í Peking, Norrænu sendiráðunum í Berlín, Raflost raflistahátíðinni, 15:15 tónleikaseríunni, tónlistarhátíðinni Við Djúpið á Ísafirði og þrisvar sinnum á Myrkum Músíkdögum.
Af öðrum viðburðum má nefna einleik á Heimssýningunni – Expo 2010 í Shanghai þar sem Tinna lék í opinberri dagskrá forseta Íslands í Expo Center og í íslenska skálanum. Sama ár tók hún þátt í Íslandsfrumflutningi á stórvirkinu Vortex Temporum eftir Gérard Grisey ásamt The Formalist Quartet á Listahátíð í Reykjavík. Árið 2011 tók Tinna þátt í frumflutningi á verki Hlyns Aðils Vilmarssonar fyrir píanó, strengjasveit og sínusbylgjur með Kammersveit Reykjavíkur á Myrkum Músíkdögum. Árið 2012 flutti hún öll Sonorities verk Magnúsar Blöndals Jóhannssonar fyrir einleikspíanó á Tectonics nútímatónlistarhátíðinni í Hörpu. Sama ár flutti hún Visions de l´amen eftir Olivier Messiaen í fyrsta sinn á Íslandi á Listahátíð í Reykjavík ásamt Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur, píanóleikara. Tinna hefur leikið einleik í Portúgal, Austurríki, Boston og París og dúó performans á Bang on a Can maraþoninu í San Francisco.
Af helstu samstarfsverkefnum má nefna dansverkið Nú nú eftir Bjargeyju Ólafsdóttur, myndlistarmann, sem frumflutt var á Reykavík Dance Festival og Jaðarber tónleikaseríunni 2011. Tinna kemur einnig fram í vídeóverkinu Stjónarskrá lýðveldisins íslands eftir myndlistartvíeykið Ólaf Ólafsson og Libiu Castro og Karólínu Eiríksdóttur, tónskáld, en það var sýnt á Feneyjartvíæringnum 2011.
Tinna stundaði nám í Hannover og Münster í Þýskalandi og síðar í Boston við New England Conservatory of Music hjá Stephen Drury, þaðan sem hún lauk Graduate Diploma. Hún hlaut Fulbright styrk og Thor Thors styrk The American-Scandinavian Foundation. Hún hefur fjórum sinnum hlotið starfslaun listamanna. Tinna hefur tekið þátt í fjölda námskeiða og sótt einkatíma hjá píanóleikurum eins og Yvonne Loriod-Messiaen, Peter Hill, Håkon Austbø og Pierre Réach. Fyrsti einleiksdiskur hennar Granit Games með íslenskri píanótónlist kom út hjá Smekkleysu árið 2007. Tinna er stofnandi og listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar Jaðarbers á Listasafni Reykjavíkur.