John Cage og Pauline Oliveros

Tinna flytur verk fyrir undirbúið píanó eftir John Cage og tónlistarhópurinn Fengjastrútur verk eftir Pauline Oliveros í tengslum við myndlistarsýninguna Ný list verður til á Listasafni Reykjavíkur og Jaðarber. Dagný Kristjánsdóttir, prófessor í íslenskum nútímabókmenntum við Háskóla Íslands, verður í gestaspjalli hjá sýningarstjóranum Jóni Proppé kl: 15 og verða verkin flutt fyrir og eftir spjall. Sunnudaginn 30. október á Kjarvalsstöðum
Nánar um viðburðinn