Mörk

Mörk frumflutt á Cycle Music and Art Festival 5. september kl: 18 í Gerðarsafni, Kópavogi. Flytjendur: Tinna Þorsteinsdóttir, píanó – Frank Aarnink, slagverk – Kristín Jónsdóttir, upplesari. Mörk er samvinnuverkefni Gunnars Andreasar Kristinssonar tónskálds, Jóhannesar Dagssonar myndlistarmanns og Tinnu Þorsteinsdóttur, píanóleikara. Cycle Music and Art Festival

UNM 2017

Ung Nordisk Musik tónlistarhátíðin 2017 verður haldin á Íslandi. Opnunartónleikar hátíðarinnar verða í Kaldalóni í Hörpu 14. ágúst kl: 21. Leik þar tvö píanóverk: Ég er skrifborð eftir Sigurð Árna Jónsson og A Table of Chords eftir Dante Thelestam ungnordiskmusik.is

Portrett – Gunnar Grímsson

Portrett tónleikar Gunnars Grímssonar í Mengi 27. júlí kl: 21. Leik þar ásamt valinkunnum meðlimum Fengjastrúts

S12 – Bergen

Verkefnið Disruptances – Shield ásamt Æsu Björk, glerlistakonu, heldur áfram. Dvöl við S12 – Galleri og Verksted í Bergen, Noregi í lok júní-júlí. Meira um verkefnið síðar S12

Bylta – USA dagsetningar

Bylta, verkefni Tinnu og Alli Hoag, glerlistakonu, fer af stað með splunkunýja sýningu; Sending, í lok maí 2017, sem samtvinnar glerblástur, elektróník, myndlist og hljóð. Dagsetningar í USA: – Third Thursday at Chrysler Museum of Art, VA: 18. maí – UrbanGlass, NY: 20. maí – GAS Conference, Chrysler Museum of Art, VA: 2. júní Bylta

Hong Kong New Music Ensemble – Module 7

Residensía 11.-17. apríl hjá Hong Kong New Music Ensemble í tengslum við Cycle Music and Art Festival á Íslandi. Vinnustofa ásamt listnemendum og listamönnum frá Íslandi og Hong Kong. Tónleikar með Trajectories eftir Önnu Þorvaldsdóttur og Sigurð Guðjónsson og 283° eftir Áka Ásgeirsson ásamt fleiri verkum sem unnin verða í vinnustofunni. Í samstarfi við Spring Workshop og The Modern Academy. Nánar hér

Tvær tokkötur

Ljóða og tokkötukvöld í Hannesarholti 5. apríl kl: 20. Ljóð eftir Steinunni Sigurðardóttur og tónlist eftir Þorstein Hauksson. Tinna leikur Tvær tokkötur fyrir píanó.

Bak við bleikan skjá

Tónleikar með verkum Guðmundar Steins Gunnarssonar, þar sem heyrast m.a. Mamma pikkar á tölvu sumarið 1988 fyrir dótapíanó og Vargarð fyrir fiðlu og píanó ásamt Unu Sveinbjarnardóttur. Mengi 4. mars kl: 21

Söngverk Karólínu og tónskáldaspjall

Laugardaginn 25. febrúar kl. 16:00 verða haldnir í Safnahúsinu við Hverfisgötu síðdegistónleikar með söngverkum eftir Karólínu Eiríksdóttur. Þau sem koma fram eru Ásgerður Júníusdóttir mezzó-sópran, Tinna Þorsteinsdóttir píanóleikari, Guðrún Hrund Harðardóttir víóluleikari og Matthías Nardeau óbóleikari. Auk þess mun Hjálmar H. Ragnarsson, tónskáld, ræða við Karólínu um tilurð verkanna. Á tónleikunum verður Íslandsfrumflutningur tveggja verka, við ljóð Steinunnar Sigurðardóttur og Sjóns; Snæfellsjökull gengur á land og draumkvæði úr suðurhöfum.

Málþing um virka nótnaskrift

Rannsóknarstofa í tónlist (RíT) við tónlistardeild Listaháskóla Íslands í samstarfi við Myrka Músíkdaga efnir til málstofu um virka nótnaskrift. Málstofan verður í Hörpu, Stemmu, föstudaginn 27. janúar kl. 13:30 Þátttakendur: Bergrún Snæbjörnsdóttir, tónskáld Guðmundur Steinn Gunnarsson, tónskáld Áki Ásgeirsson, tónskáld Tinna Þorsteinsdóttir, píanóleikari Þráinn Hjálmarsson, tónskáld Fundarstjóri: Einar Torfi Einarsson (LHÍ) Meira hér

Portrett: Karólína Eiríksdóttir

Í tengslum við endurupptöku óperunnar MagnusMaria eftir Karólínu Eiríksdóttur í Stadsteatern í Stokkhólmi og Þjóðaróperunni í Helsinki, munu Ásgerður Júníusdóttir mezzósópran, sem syngur eitt aðalhlutverkanna í óperunni og Tinna efna til tónleika á báðum stöðum með verkum Karólínu. Frumfluttur verður nýr sönglagaflokkur; draumkvæði úr suðurhöfum, sem Karólína samdi fyrir þær stöllur við nýjan, samnefndan ljóðabálk eftir Sjón og Snæfellsjökull gengur á land við ljóð Steinunnar Sigurðardóttur. Fyrstu tónleikarnir verða í Norsku kirkjunni í Stokkhólmi þann 29. nóvember kl: 18 og síðari í Íslenska sendiráðinu í Helsinki á Fullveldisdaginn 1. desember kl: 17. Þessir tónleikar eru haldnir með stuðningi íslensku sendiráðanna …

Cycle Music and Art Festival

Kammertónleikar á Cycle Music and Art Festival 28. október í Salnum, Kópavogi kl: 21. Verk eftir Carolyn Chen, Berglindi Maríu Tómasdóttur, Önnu Þorvaldsdóttur, Elenu Rykovu og Inga Garðar Erlendsson. Flytjendur í Relationships with Gravity eftir Carolyn Chen: Berglind María Tómasdóttir, flauta, Carolyn Chen, guqin, Frank Aarnink, slagverk, Tinna, píanó. Bat Jamming eftir Elenu Rykovu: Tinna og Frank Aarnink á píanó. Cycle Music and Art Festival

Sjónhverfingar

Á ritþinginu Sjónhverfingar er höfundurinn Sjón gestur. Tónlist flytja mezzosópransöngkonan Ásgerður Júníusdóttir og Tinna Þorsteinsdóttir píanóleikari við ljóðs Sjóns. Þær frumflytja ljóðaflokkinn Næturljóð eftir Atla Heimi Sveinsson og leika enn fremur lög eftir Björk og Ragnhildi Gísladóttur. Ritþingið fer fram laugardaginn 22. október og stendur frá klukkan 14-16.30 í Borgarbókasafninu Gerðubergi. Nánar

Norrænir Músíkdagar 2016 – Einleikstónleikar

Tinna heldur píanótónleika á Norrænum Músíkdögum laugardaginn 1. október kl. 15:00 í Kaldalónssal Hörpu. Efnisskrá: Ville Raasakka: Vanishing Point Kari Beate Tandberg: Displacements Hjálmar H. Ragnarsson: Stilla – frumflutningur Kristín Þóra Haraldsdóttir: Dropar (dótapíanó) Gunnar Karel Másson: accelerated and made significant (píanó og elektróník) Jesper Pedersen: UAO 215 (píanó, elektróník, vídeó og aðstoðarmaður) Aðstoðarmaður: Frank Aarnink Norrænir Músíkdagar 2016

Shield – European Glass Context 2016

Nýtt gler- og hljóðverk ‘Shield’ eftir Æsu Björk, glerlistamann og Tinnu, sem unnið var að í S12 Galleri og Verksted í Bergen verður frumsýnt á tvíæringnum European Glass Context í Bornholm Art Museum í EGC-Curated sýningunni, sem opnar þann 10. september. Sýningin stendur yfir til 13. nóvember 2016 EGC2016 S12 Galleri og Verksted

Sonic Festival 5.0 – Echea

Einleikstónleikar á Sonic Festival 5.0 – Echea í Kaupmannahöfn þann 8. september í Literaturhaus kl: 20. Einnig kammertónleikar með frumfluttum verkum þann 10. september í Mayhem kl. 19:00. Á undan fer fram Artist Talk í Kvarterhuset kl: 13. – Dagskrá þann 8. september: Gunnar Karel Másson: accelerated and made significant (2014) (píanó og elektróník) Páll Ivan Pálsson: Sáðrás (dótapíanó, elektróník og vídjó) (2013) Guðmundur Steinn Gunnarsson: Mamma pikkar á tölvu sumarið 1988 (2014) (dótapíanó og virk nótnaskrift) Ingibjörg Friðriksdóttir: Right is Wrong (2013) (píanó og virk nótnaskrift) Anna Þorvaldsdóttir: Trajectories (2013) (píanó, elektróník og vídjó eftir Sigurð Guðjónsson) – Artist …

Bergen – Shield

Tinna dvelur við S12 Galleri og Verksted í Bergen við gerð á nýju gler- og hljóðverki ásamt Æsu Björk, glerlistamanni, dagana 14.-26. ágúst. Verkið sem nefnist Shield verður frumsýnt á tvíæringnum European Glass Context í Bornholm Art Museum, Danmörku þann 10. september í EGC-Curated hlutanum. Hún stendur yfir til 13. nóvember 2016 EGC2016 S12 Galleri og Verksted

Sumarkvöld með Jónasi Tómassyni

Jónas Tómasson, tónskáld verður sjötugur á árinu og er því efnt til tveggja hátíðartónleika. Í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar 26. júlí kl. 20:30 og Hömrum, Ísafirði 28. júlí. kl. 20:00. Tinna leikur píanóverkin Jöklu og Emblu og Dótapolka eftir Jónas

Bylta í UrbanGlass, NYC

Bylta kemur fram í UrbanGlass í NYC með splunkunýjan performans kallaðan Sending, þann 18. júní. Meira um viðburðinn hér: Sending í UrbanGlass Studio: https://www.urbanglass.org/events/detail/bylta Heimasíða Byltu: http://bylta.weebly.com