Listrænn stjórnandi Norrænna músíkdaga 2021

Tinna hefur verið ráðin listrænn stjórnandi Norrænna músíkdaga 2021 sem verða haldnir á Íslandi. Hátíðin er sú elsta samfleytt starfandi á Norðurlöndum, en hún var fyrst haldin árið 1888. Hún er rekin af tónskáldafélögum Norðurlandanna. Stórkostleg vinna framundan og spennandi með frábæru samstarfsfólki eins og Valdísi Þorkelsdóttur sem verður framkvæmdastjóri hátíðarinnar. Fylgist með!
NMD